Hjem   |  Prosjektet   |  Hjelp   |  Takk til   | Tips   | Kontakt oss   |

 Folkeminnesamlingen

 Kulturkalender

 Billedgalleri

 Lenk denne siden

 Ekstra
 Send postkort


 Våre andre sider:


 Foreningen Forn Sed

 Medieomtaler

 Ni Heimer
 

 

Kötludraumur

Már hefur búið,
manna göfgastur,
nýtur höfðingi
á nesi Reykja.
Hans frá eg kona
Katla héti;
sú var menjaskorð
manna stórra.
Þau frá eg unnust
allt hið bezta,
hugði hjóna
hvort öðru vel;
þótti Katla
kvenna allra,
vífið vitra,
vera skrautlegust.

Már bjóst heiman
með mæta drengi
ör að ríða
alþingis til,
en vandlega
vildi´á meðan
skorða gulls honum
skyrtu sauma.

Út gekk úr skála
árla myrgins
vel björt kona
til veðrs að líta,
hné hóglega
hurð að gætti,
svo að þar enginn
inn komast mátti.

Gekk til dyngju
drós gullvafin,
þá var silkisif
svefn í brjósti;
hné til beðjar
brúður skjótlega;
ei frá eg hin ljósa
laust sofnaði.

Komu kátar
konur til dyngju:
kváðu hina fögru
fast heldur sofa;
þá tók að draga
að degi miðjum,
er þær veigaskorð
vekja fýsti.

Gátu ei vakið
gullfagurt fljóð,
var þá hryggð í hug
hverju sprundi;
sögðu snótir
siðlundaðar
fróðgeðjuðum til
fóstra hennar.

Hann lét verða
á vegu marga
raunsvinnlegra
ráða leitað,
en við enga
ýta breytni
víf vænborið
vakna mátti.

Vakti yfir fljóði
full dægur fjögur
fróðgeðjaður
fóstri hennar;
þá brá Katla
kynjasvefni,
þó var við fyrða
fálát næsta.

Már kom af þingi
við þegna val,
þá var kaldlynd kona
sú er Katla heitir;
spurði seggi,
hvað sökum ylli;
því baugabil
brygði glaumi.

Sögðu snótir
að sofið hefði
full dægur fjögur
falda nanna:
"Enginn gat vakið
víf um stundir,"
- því væri þorngrund
þanninn brugðið.

Már í hljóði
hana spurði,
hvað í svefnförum
snótar væri:
"Það má vera
að þér ei verði
mein að mælgi
þótt mér segir."

"Már, segi eg þér
mína drauma,
þó eg alla menn
aðra leyni,
því mig væntir
vissulega,
að mér hagnist vel
hugbót að því.

Það var allt í senn
að svefn sótti mig,
er þú heiman fórst,
heldur fastlega;
eg réð sofna
á svanadúni,
mjög festist mér hann
fast í brjósti.

Kona þótti mér
koma í dyngju
heldur húsfreyjuleg
að hitta mig;
hennar þótti mér
hvert orð vera
svo sem gras greri
og gaman á að heyra.

Hún kvaðst eiga
um á þvera
heldur skammt héðan
húsakynni;
þess réð biðja
með blíðum orðum
að eg gullhlaðs grund
á götu leiddi.

Við frá garði
gengum þínum,
þar sem fyrir var
foldar dreyri,
virtist mér
að vera mundi
skaðlaust við mig
í skap hennar.

Hún þakkaði mér
mína göngu,
en eg bað hana
heim vel fara,
hugði eg skiljast
við skrautvaxna,
er hún þar um stéttir
stillti fimlega.

Hún bað mig þá
í hönd sér taka:
"Verður þú að sjá
vorar byggðir."
Svipti mér svo
yfir svala brunna
brátt á bakkann,
bar þanninn til.

Hún kallaði mig
Kötlu sína -
verður öll að tjá
vor tíðindi:
"Þegar skal eg búin
þér að fylgja,
hlaðgefn, ef þú vilt,
heim í dyngju."

Þar sá eg hennar
húsakynni,
hef eg ei bjartari
bústað litið;
eigi var mér þá
ugglaust um það,
hvað í minni för
mundi hreppa.

Inn gengum við,
þar sem ekki var
fjölmennt fyrir
í fljóða sal;
stóð hjá kvendum
kerlaug búin
og hagleg hjá
hvíla tjölduð.

Gengu þá ljósar
í laug konur,
var fljóða flokkur
fullvel þveginn;
eg réð sofna
á svanadúni;
áður var vífum
víndrykkur borinn.

Vaknaði eg við það,
að víf í sal
glórauðu sig
gulli skrýddu,
en mér að höndum
húsfreyja bar
gullsaumuð föt,
gerð með prýði.

Kastaði hún yfir mig
kápu sinni,
sú var skikkja
skorin fimlega,
með gráskinnum undir,
en guðvefjum yfir,
og búin í skaut
brenndu gulli.

Mér bauð Álfvör,
að eiga skyldi
hnossir sínar,
ef eg hafa vildi;
hringinn rauða,
höfuðgull og men,
fingurgull fjögur
og fagran linda.

Oss bað ganga
með glöðu hjarta
allsiðlega
inn í skála;
ein kvaðst hún vilja
öllu ráða;
var hún þar í flokki
fullskrautlegust.

Vér inn þaðan
átta gengum
framlundaðar
frúr í skála,
settust prúðar
á pall konur,
þar sem virðuleg
voru sæti.

Dreif í skála
skrautbúið lið,
þar var glæsilega
gólfhjörtr skipaðr;
svo virtist mér
vera innan hallar
sem gullmerktur farfi
gerðr á tjöldum.

Drukku gumar
af glöðu hjarta
og marg-höndluðu
horn gullbúin;
stóð fyrir mönnum
í miðjum sal
skapker búið
af skíra gulli..

En í öndvegi
æðra hvíldi
seimnjótr búinn
silkiklæðum,
á honum tók
albjört kona;
og svo kærlega
Kára hún vakti.

Hvað er þér, móðir,
að þú mínum hefur,
siðlát kona
svefni brugðið?"
Vera kvað hún nokkuð
nýtt í efni:
"Nú er Katla
komin í skála".

"Allvel væri,
ef oss mætti
héðan af öllum
hugbót verða,
þó er mér aldrei
ugglaust um það,
hvort samlyndir við mig
sáttum eftir."

Við vorum bæði
til bekkjar leidd
siklings arfi
af sveinum ríkum;
beiddi Álfvör
bragna sína
brúðguma kalla
og breyta svo.

Sögðu snótir
svefnmál vera,
var mér skjótlega
skipað til rekkju;
innti Álfvör
allkátlega:
"Nú skaltu, Katla,
Kárs brúðr vera!"

En eg sárlega
svaraði henni,
varð mér hryggt í hug
af hennar orðum:
"Miklu ann eg
Mávi heitara
en eg með yður
yndi taki."

Mælti Álfvör
mjög stirðlega,
ekki var hún þýð við mig,
þessum orðum:
"Þess býður þú
bætur aldregi,
viljir þú ei, Katla,
Kárs brúðr vera."

Satt er að segja,
að síðan kom
marglátur til mín
maður í rekkju,
mig bað hann eina
öllu ráða
gulli þeirra
og gersemum.

En eg lét á því
engar vonir,
að eg auðbrjóti
ástir gæfi;
sá hann það gjörla,
að eg gleði týndi;
komu þá býsna stór
brigð á mín augu.

Svo var eg orðin
ekka þrungin,
miklu meir en það
eg megi frá segja;
eg þóttist firna
fáráð vera,
svo sem í flokki
færi eg varga.

Þar var eg hjá þeim
í þungum hug
tvær nætur í bæ
með trega mestum;
enginn mátti þó
ýta kinda
gleðja mig glaumi,
þó gjarnan vildi.

Réð af móði
mjög bráðlega
kinnrjóðr við mig
Kár að mæla:
"Heldur skal eg
helstríð bera
en á ljóstri þér
lífskvöl sjái.

Huggast skaltu,
hafglóðar bil,
þér skal bráðlega
á burtu fylgja.
Allt bið eg gangi,
gullhlaðs nanna
þrálynd við mig,
þér að óskum.

Við munum eiga
allfrækilegan,
svinn seimabil,
svein í vonum.
Ara láttu heita
okkarn niðja,
þess bið eg þig,
er þar mun koma."

Hann með belti
brigða góðu
senn hníf í hönd
henni seldi:
"Það skal okkar
þrifsamlegum
frábærum syni
fylgja með nafni.

Legg þú í fagra
finnskjóðu niður
glys þitt og föt
gulli búin;
skal ei góðum
gersemum ræna,
þér ann eg bauga
bezt að njóta.

Allar skaltu hnossir
er heim kemur,
marghyggið víf,
Mávi sýna,
og honum segja
satt frá öllu,
þó þér vaxi það,
víf , í augum.

Flytjið þið ykkar
yfir á þvera
bústað þann
er byggja ætlið;
látið við enda
á ykkar skála
fuglþúfur tvær
fríðar standa.

Hér mun eg skiljast,
skýrleg, við þig,
munum við síðan
sjást aldregi...."

Það voru allir
í þungum harmi,
þá eg til innis
aftur skyldi;
heyrði eg bráðlega
brest í skála,
er Kár kenndi
kaldan dauða.

Heim fylgdi mér
hárbjört kona,
eigi þurfti Álfvöru
angrs að frýja;
mælti hin skýra
að skilnaði
þorngrund við mig
þessum orðum:

"Heil farðu, Katla,
þó eg hafi ekki
utan sorg sonar míns
fyrir sakir þínar:
eigi skal gersemum
góðum ræna
þínum hinum beztu,
því það er Kárs vilji.

Við skulum vefjast
vinalags
snörum,
tæri eg þér til þess
tvennum blæjum;
mun þig ölveig þá
ekki saka;
veldur ekki gullskorð
utan góðu einu."

En svinnhuguð
fyrir sumar litlu
frábæran son
fæddi Katla;
sögðu konur,
að koma mundi
barn aldregi
bjartara sýnum.

Hugði að sveini
sjálfur vandlega
Már og mælti
við menjabil:
"Unn þú vel, þorngrund,
þessum syni,
sá mun gullbrjótur
giftu stýra.

Svo skal hann nefna
nafnvænlegastan
fagran Ara
sem faðir hans mælti;
höfðinglegur
er hann í augum,
marghygginn mjög,
mér skal kenna."

Sveinn réð vaxa
fyrir vina brjósti
og með öllu
almannalofi.
Svo til enda
ævi sinnar
mjög vel unnust
Már og Katla.

 Øverst på siden

Foreningen Forn Sed 1999-2002