Hjem   |  Prosjektet   |  Hjelp   |  Takk til   | Tips   | Kontakt oss   |

 Folkeminnesamlingen

 Kulturkalender

 Billedgalleri

 Lenk denne siden

 Ekstra
 Send postkort


 Våre andre sider:


 Foreningen Forn Sed

 Medieomtaler

 Ni Heimer
 

 

Í álögum
eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson
Fengið af heimasíðunni: Álfar og huldufólk

"Faðir mitt átti fagurt land"
fyrir það er ég hrelldur,
nú er það grafið í svalan sæ,
seiðurinn veldur,
seiðurinn þessu veldur.

Köld eru norna reiðiráð,
rammt hefir stjúpa galið;
flögra ég um eins og hræfús hrafn,
hefir mig kalið,
hefir á fótum kalið.

Þó eru óbreytt augun mín,
en álagagervið blekkir.
Það eitt getur bætt um ósköpin,
ef einhver þekkir,
ef einhver svipinn þekkir.

En enginn kannast við augun mín,
í álögum má ég þreyja
og seinast á hjarni hælislaus
í haminum deyja,
í haminum mínum deyja.

 Øverst på siden

Foreningen Forn Sed 1999-2002