Í vestri sólin sígur
og slen á skóga hnígur,
og prúđar stjörnur stara
á stilltu, bláu sundin.
En líf í limiđ fćrist
og laufiđ hćgan bćrist,
ţví álfaflokkar fara
til fundar inn í lundinn.
Ţeir koma úr öllum áttum
og ólíkir í háttum,
en allir álfar finna
samt unnustur og vini.
Ţeir skrýđast skćru líni
og skála í silfurvíni,
sem dalsins dísir vinna
úr dögg og mánaskini.
Og nú skal hátíđ halda.
Sjá hvirfing blárra tjalda
viđ rökkvuđ sundin rísa
sem rođna í mildum bjarma.
Og álfaaugun tindra
og álfablysin sindra
í grćnu laufi og lýsa
sem logagull um arma.
Og dátt skal dansinn stiginn
fyrst dagurinn er hniginn
og enginn álfur telur
ţađ eftir sér ađ vaka.
Og álfar berja bumbur
og blása í álfatrumbur
svo dýrin fara í felur
en fuglar hćtta ađ kvaka.
Og aldnir álfar labba
og álfakarlar rabba
um hagi sína saman
og sćlli stunda minnast.
Ţeir totta tómar pípur
og tregi hjörtun grípur.
Ó, guđ, hve ţá var gaman!
Hve gott var ţá ađ finnast!
En einnig ćskan bjarta
ber óróleik í hjarta,
og álfar sitja í sárum,
ţví senn eiga ţeir ađ skilja.
Ţeir geyma mild í minni
sín mánanćturkynni
og gráta tćrum tárum,
sem tími og laufblöđ hylja.
Og ţví ber ţeirra gangur
svo ţöglan vott um angur,
ađ skógarlaufin skjálfa
á skuggadökkum hlyni,
er ungir álfar tárast,
ţví álfa tekur sárast
ađ kveđja ađra álfa,
sem álfar töldu vini.
Og ţó ađ ţú sért álfur
og ţekkir eflaust sjálfur
ađ til fyrir svona trítil
á tilveran stađi nóga
og betri til ađ bú´í,
ţá botnar aldri ţú í.
hvađ löndin eru lítil
en langt til nćstu skóga.