
Félagið Forn Siður vill hefja til vegs og virðingar fornan sið og forn menningarverðmæti. Þetta viljum við gera án þess að gera lítið úr öðrum trúarsiðum, gömlum eða nýjum, eða menningu annarra þjóðflokka. Ofstæki eða hatur í garð annarra getur aldrei samrýmst stefnu félagsins.
Hinn forni siður byggir á umburðarlyndi, heiðarleika, drengskap og virðingu fyrir náttúrunni og öllu lífi. Megininntak siðarins er að hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér og sínum gerðum. Í Hávamálum, kveðskap Óðins, er meðal annars að finna siðareglur heiðinna manna. Heimsmyndinni er lýst í Völuspá. Í trúarlegum málefnum byggjum við fyrst og fremst á hinum gömlu Eddum og norrænni þjóðtrú.
Að kalla siðinn ásatrú er reyndar villandi þar sem átrúnaður er ekki einungis bundinn við Æsi. Heimilt er að viðurkenna fleiri guði og vætti innan norrænnar goðafræði og þjóðtrúar, svo sem landvætti, álfa, dísir, vani, jötna, dverga, drauga og aðrar máttugar verur eins og forfeður. Meðlimir félagsins iðka trú sína á hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar meðan ekki brýtur í bága við landslög. Þeir geta helgað goðunum líkneskjur og önnur tákn en ekki er skylda hvers og eins að tilbiðja líkneskjur þessar.
Félagið Forn Siður hefur það að takmarki sínu að leggja traustan grunn að félagi fyrir þá einstaklinga sem vilja hefja til vegs og virðingar gamlar hefðir og fornan sið. Það er einnig vilji félagsins að auka skilning og áhuga á þjóðtrú, gömlum hefðum og menningarverðmætum. Þetta getur verið í formi námskeiða og verkefna ýmiskonar. Við setjum markið hátt! Félagið hefur meðal annars lagt út stærsta safn norrænna bókmennta á alnetið. Af öðrum verkefnum er sérstaklega vert að nefna Þjóðsagnaverkefnið. Félagið heldur eigið heimildasafn blaðagreina og ritgerða er spannar áhugasvið okkar. Fréttablað félagsins heitir Ni Heimer og kemur út fjórum sinnum á ári.
Að lokum ber að geta þess að við komum saman nokkrum sinnum á ári og blótum til heiðurs goðum og öðrum vættum.
Félagið Foreningen Forn Sed er viðurkennt og skráð sem trúfélag í Noregi.