top of page

Barnsvaggan á Minniþverá

Forfatterens bilde: fornsednorge
fornsednorge
26. juni 2018
1 min lesing

Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar.


Kristín sem var á Minniþverá (hér um bil 1830-40) sagði frá því um móður sína sem var skyggn að hún hefði verið með ömmu Kristínar á engjum og séð einu sinni konur tvær koma ofan úr fjalli og leiða karl á milli sín sem eitthvað bar. Þegar þær komu nær leystu þær pjönkuna ofan af karlinum; sá hún þá að það var vagga og breitt með rauðu yfir. Síðan tóku þær karlinn og börðu hann utan svo hann fór að smáminnka og var orðinn pattakorn. Þá tóku þær hann enn og hnoðuðu unz hann var orðinn eins lítill og vöggubarn. Lögðu þær hann þá í vögguna, breiddu rauða klæðið yfir, báru hana svo milli sín og stefndu með allt saman heim að bænum. Stúlkan sagði þá móður sinni frá því sem hún hafði séð; en móðir hennar brá skjótt við, hljóp heim og varð fyrri en huldukonurnar að barnsvöggu sem hún hafði látið standa á hlaðinu. En þegar huldukonurnar sáu það tóku þær barnið sem þær voru með úr vöggunni og rassskelltu það, smáhröktu svo og hrintu því á undan sér. Við það stækkaði karl þeirra óðum aftur þangað til hann varð eins og hann var upphaflega; hélt hann svo með þeim upp í fjall og hurfu þau þar öll.

Siste innlegg

Se alle
Minni kvenna

Matthías Jochumsson, 1835 - 1920. Fósturlandsins Freyja, Fagra Vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís! Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár; þú ert lands og líða ljós í þúsund ár.

 
 
 
Baulutjörn

Íslenskar þjóð-sögur og sagnir, hefti VII.Safnað og skráð hefur Sigfús Sigfússon.Víkingsútgáfan, Reykjavík 1945. Ef þú lógar stórgrip og þarft að ganga frá, áður en þú hefur felið hann, þá skaltu sti

 
 
 
Nykur í Kumburtjörn

þjóðsögur Jóns Árnasonar. Fyrir kemur það að nykur er nefndur kumbur; hvort sem af því er dreginn Kumbravogur eða ekki, þá er þó af því dregin Kumburtjörn hjá Skarði undir Skarðsfjalli í Landsveit. Ý

 
 
 

Kommentarer


© 2018 FORN SED NORGE

  • Facebook - White Circle
bottom of page