top of page
  • Forfatterens bildefornsednorge

Legg í lófa karls, karls

Það var á einum bæ, að börn voru úti hjá hól nokkrum að leika sér; var það eitt stúlkubarn ungt og tvö piltbörn eldri. Þau sáu holu í hólnum. Þá átti þessi stúlka, sem yngst var af þeim, að hafa rétt inn í holuna hendina og sagt að gamni sínu, eins og barna er háttur til: "Legg í lófa karls, karls; karl skal ekki sjá." Þá átti að hafa verið lagður stór svuntuhnappur gylltur í lófa barnsins. Þegar hin börnin sáu þetta, öfunduðu þau þetta barn; þá hafði hið elsta rétt inn hönd sína og sagt hið sama sem hið yngsta sagði og ímyndaði sér, að það mundi hljóta eigi minna hnoss en hið yngsta hefði hlotið. En það lánaðist eigi, því þetta barn fékk ekkert nema visnaða hönd sína, þá það tók hana út úr holunni, og varð svo, meðan það lifði.

1 visninger0 kommentarer

Siste innlegg

Se alle

Trollslaget.

Islandsk folkevise med mytologisk innhold. Tryllist tröll í helli hvellum hljóða kvæða grimm mjög dimmum, rymja, glymja, þrymja, þruma þrungið löngum grjót með róti, orða birgðum jötuns játum,

Ólafur Liljurós

Ólafur reið með björgum fram, villir hann, stillir hann, hitti fyrir sér álfa rann, þar rauður loginn brann, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram. Þar kom út ein álfamær, villir hann, stillir

Merkidagavísur

Íslenskar þjóð-sögur og sagnir, hefti VII. Safnað og skráð hefur Sigfús Sigfússon. Víkingsútgáfan, Reykjavík 1945. Margar vísur hafa verið til um merkidaga, þar á meðal þessar: Ef blika' er í heiði og

bottom of page